Um skólann
Með yfir 25 ára reynslu í ökukennslum höfum við hjálpað þúsundum nemenda að öðlast öryggi og sjálfstraust á vegum Íslands.
Sagan
Í tengslum við hægri breytinguna árið 1968 hóf Ökukennarafélag Íslands rekstur ökuskóla og starfaði skólinn undir nafni Fræðslumiðstöðvar Ökukennarafélags Íslands og var til húsa að Stigahlíð 45. Þar var boðið upp á námskeið til undirbúnings almennu ökuprófi og síðar námskeið fyrir létt bifhjól og dráttarvélar.
Árið 1983 flutti Ökukennarafélagið starfsemi sína í Þarabakka 3, í Mjóddinni og þar með ökuskólann líka og fljótlega var farið að kalla skólann„Ökuskólann í Mjódd" Skólinn hefur boðið upp á námskeið til aukinna ökuréttinda frá árinu 1993 eða síðan hið opinbera hætti rekstri slíkra námskeiða.
Námskeið sem undirbúa nemendur fyrir almennt ökupróf eru haldin í hverri viku allt árið um kring og einnig eru haldin námskeið fyrir ensku, pólsku og tælenskumælandi fólk þegar þátttaka er næg.
Skólinn bíður upp á nám til:
- Almennra ökuréttinda á íslensku, ensku, pólsku
- Aukinna ökuréttinda á leigubíl, vörubíl, rútu og eftirvagn
- Bifhjólaréttinda, bæði til A og M réttinda
- Endurmenntun atvinnubílstjóra
- Námskeið fyrir afleysingamenn á leigubíl
- Námskeið vegna rekstarleyfa
- Sérstakt námskeið vegna akstursbanns
Nafn | Netfang |
|---|---|
Sigurður Steinsson | |
Knútur Halldórsson | |
Svavar Svavarsson |
